Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kyrrsetningarkröfu Datacell og Sunshine Press Productions (SPP) á eignum Valitor. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Valitor.

Ákvörðunin kemur ekki óvart, að mati, Valitor enda telur fyrirtækið að kyrrsetningarkrafan hafi ekki átt við nein rök að styðjast, auk þess sem Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafði áður hafnað sömu kröfu.  Valitor vill jafnframt nota tækifærið til að vísa á bug söguburði í fjölmiðlum þess efnis að lögmaður Datacell og SPP hafi átt í einhvers konar samningaviðræðum við Valitor um uppgjör á kröfum þessara fyrirtækja á hendur félaginu. Engar slíkar viðræður hafa átt sér stað.

Vert er að benda á að langstærstur hluti krafna framangreindra félaga á hendur Valitor, eða um 95%, er krafa SPP sem er að langmestu leyti í eigu Julian Assange. Það félag hefur aldrei átt í neinu viðskiptasambandi við Valitor. Auk þess hefur félagið aldrei haft nema hverfandi tekjur en gerir samt milljarða kröfur á hendur fyrirtækinu. Valitor hefur frá upphafi talið að enginn grundvöllur sé fyrir kröfugerð SPP og hefur því ítrekað hafnað henni. Auk þess er vert að minna á að enginn dómur hefur fallið um kröfugerð SPP, segir í tilkynningunni.