Bæjarstjórn Hafnarfjarðar bókaði í gær einróma og afgerandi stuðning við tillögur stjórnar Strætó bs. Hugmyndir Strætó snúa meðal annars að því að gera tilraun með næturstrætó, fella niður sumaráætlun og lengja akstur á kvöldin.

Hér er hægt að sjá bókunina sem var lögð fram að fulltrúm allra flokka í bæjarstjórn Hafnarfjarðar: „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar styður eindregið tillögur stjórnar Strætó bs. um aukna þjónustu, eins og þeim er lýst í forsendum fjárhagsáætlunar sem samþykktar voru þann 25. ágúst sl. og vísað til umfjöllunar á eigendavettvangi Strætó bs."

Forseti bæjarstjórnar Guðlaug Kristjánsdóttir, sem jafnframt er fulltrúi bæjarins í stjórn Strætó, var ánægð með þann einhug sem ríkir um málið í bæjarstjórn. „Ég er ánægð með þessa samstöðu og framsýni hjá okkur Hafnfirðingunum enda mun þetta þýða aukna þjónustu fyrir bæjarbúa.“

Stjórn SSH hitt­ist 4. sept­em­ber og kem­ur þá í ljós hvort tillaga stjórnar Strætó hlýtur braut­ar­gengi. Stjórn Strætó samþykkti í síðustu viku til­lögu sem fel­ur í stóraukna þjónustu við farþega.  Þar ber hæst að fella niður sumaráætlun, lengja akstur á kvöldin, gera tilraun með næturstrætó, auk annarra breytinga á einstaka leiðum. Stefnt er að því að breyt­ing­arn­ar taki gildi um ára­mót­in en end­an­leg ákvörðun er í hönd­um Sam­taka sveit­ar­fé­laga á höfuðborg­ar­svæðinu (SSH). Fái til­lag­an samþykki SSH verður ekið á næt­urn­ar um helg­ar á leiðum 1 til 6. Ennþá á eftir að klára út­færslu­atriði eins og hvort vagn­arn­ir keyri leiðirnar á hálf­tíma fresti eða klukku­tíma fresti og hversu langt fram á nótt.