Annað frumvarp tveggja varðandi afnám gjaldeyrishafta verður lagt fram á þingfundi Alþingis í kvöld. Þetta herma heimildir Viðskiptablaðsins.

Frumvarpinu er ætlað að búa til ramma utan um útboð aflandskróna. Bjarni Benediktsson efnahags- og fjármálaráðherra mun mæla fyrir því á þingfundinum.