Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,24% í viðskiptum dagsins og stendur nú í 1.753,86 stigum. Heildarvelta á mörkuðum nam 7,9 milljörðum, þar af nam velta á hlutabréfamarkaði 5 milljörðum og velta á skuldabréfamarkaði tæpum 2,9 milljörðum.

Gengi hlutabréfa Haga lækkaði um ríflega 3% í 250,8 milljónn króna viðskiptum í dag. Einnig lækkaði gengi bréfa Skeljungs um 2,42% í 74,7 milljón króna viðskiptum.

Gengi hlutabréfa Sjóvá hækkaði um 3,36% í 687,7 milljón króna viðskiptum og hækkaði gengi hlutabréfa Eimskipafélags Íslands um 1,49% í 380,6 milljón króna viðskiptum.

Vísitölur GAMMA

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 7,4 milljarða viðskiptum. Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 4,9 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 2,5 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 0,8 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í 1,7 milljarða viðskiptum.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,2% í dag í 0,1 milljarða viðskiptum.