Deloitte á Íslandi hagnaðist um 322,8 milljónir króna á síðasta rekstrarári, sem var frá júní 2014 til maí 2015. Það er 85% meiri hagnaður en árið á undan.

Tekjur félagsins jukust um 8 prósent og námu 3,2 milljörðum. Eignir Deloitte námu 1,7 milljörðum í lok rekstrarársins og var eiginfjárhlutfallið 33%.

Félagið greiddi eigendum sínum 159,2 milljónir króna í arð. Sigurður Páll Hauksson er forstjóri Deloitte á Íslandi.