HS Orka hagnaðist um 1.278 milljónir á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta kemur fram í árshlutaruppgjöri félagsins. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður af rekstri HS Orku 142 milljónir. Rekstrartekjur námu 3.507 milljónum, en námu 3.824 milljónum í fyrra. Helsta skýring á lækkun rekstrartekna er lækkun álverðs og minni sala rafmagns til fiskimjölsverksmiðja, en loðnuvertíðin hefur verið léleg í ár.

Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 874 milljónir króna, en voru neikvæðir um 1.568 milljónir króna á sama tíma fyrir ári. Hækkun á virði afleiða, er meginorsök breytingarinnar, en þeir voru jákvæðir um 841 milljón á fyrstu sex mánuðum ársins. Virði afleiða hafði aftur á móti lækkað um 1.239 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins 2015. Áhrif gengisbreytinga voru jákvæð um 150 milljónir króna, en voru neikvæð um 282 milljónir á sama tímabili 2015.

Heildarhagnaður HS Orku nam 1.193 milljónum á fyrri helmingi ársins 2016. Heildarhagnaður fyrri helmings ársins 2015 var 75 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall í lok júní var 62,3% en það var 58,6% á sama tíma í fyrra.