Íslandssjóðir högnuðust um 108 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 114 milljónir fyrir sama tímabil 2017 og dróst saman um 5,2%. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri sem birt var á heimasíðu fyrirtækisins . Þá voru þóknanatekjur námu 686 milljónir króna samanborið við 617 milljónir króna árið áður og hækkuðu um 11,2%.

Rekstrargjöldin námu 572 milljónum króna. samanborið við 551 milljón og hækkuðu um 3,8%. Eigið fé þann 30. júní 2018 var 2.104 milljónir króna en var 2.180 milljónir í ársbyrjun. Eiginfjárhlutfallið var 59,9% í lok júní, en þetta hlutfall má lægst vera 8,0%.

Í lok júní 2018 voru 27 verðbréfa- og fjárfestingasjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 130 milljörðum króna samanborið við 124 milljarða í árslok 2017.

„Íslandssjóðir hafa náð að vaxa og dafna þrátt fyrir harða samkeppni og krefjandi aðstæður á innlendum verðbréfamarkaði undanfarið. Um tíu þúsund íslenskir sparifjáreigendur velja sjóði Íslandssjóða til að ávaxta sparnaðinn sinn og margir hafa verið viðskiptavinir okkar í meira en 20 ár. Þar ræður mestu reynslumikið og öflugt starfsfólk sem veitir faglega eignastýringarþjónustu. Þessi vöxtur hefur skilað sér í aukinni sérþekkingu starfsmanna, sem hefur gert okkur kleift að þróa nýja og spennandi fjárfestingarkosti, bæði fyrir almenna sparifjáreigendur og fagfjárfesta,“ segir Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða.

Alls voru eignir í stýringu hjá Íslandssjóðum 256 milljarðar króna í lok tímabilsins. Hjá félaginu starfa um tuttugu sérfræðingar í eignarstýringu. Íslandssjóðir sem elsta sjóðstýringarfyrirtæki landsins er dótturfélag Íslandsbanka og var stofnað árið 1994.