Hagnaður Íslandssjóða, elsta sjóðstýringafyrirtækis landsins, minnkaði milli ára úr 532 milljónum króna árið 2015 niður í 97 milljónir á síðasta ári.

Hreinar rekstrartekjur þessa dótturfélags Íslandsbanka námu 1.170 milljónum króna á síðasta ári, sem er lækkun frá 1.587 milljónum árið áður.

Starfsmönnum fjölgað

Í fréttatilkynningu segir að árið hafi einkennst af fjárfestingu í vöruþróun og breytingum hjá félaginu en starfsmönnum í teymi sérhæfðra fjárfestinga var fjölgað úr tveimur í sex, heildarstarfsmannafjöldinn jókst úr 11 í 15 og fjöldi sérhæfðra fjárfestingarkosta í stýringu félagsins tvöfaldaðist á árinu.

Greiddi félagið 1.054 milljónir til Íslandsbanka á árinu 2016 í formi þjónustugjalda og arðgreiðslu og rekstrargjöld félagins jukust úr 922 milljónum í 1.049 milljónir milli áranna.

Heildareignir minnkuðu um hálfan milljarð

Jafnframt drógust heildareignir félagsins saman úr 2.994 milljónum króna við upphaf síðasta árs í 2.453 milljónir við síðustu áramót.

Eigið fé félagsins lækkaði einnig og fór úr 2.395 milljónum króna í ársbyrjun í 2.094 milljónir, og var eiginfjárhlutfall félagsins 63,9% í árslok.

Hrein eign tæpir 122 milljarðar

Hjá félaginu voru 25 verðbréfa- og fjárfestingarsjóðir í rekstri hjá félaginu, og nam hrein eign þeirra 121.704 milljónum króna.

Hagnaður færður á hlutdeildarskírteini eigenda verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða var 3.541 milljónir króna árið 2016 samanborið við 11.713 milljón króna hagnað árið 2015.

Lægri ávöxtun af eignum

„Rekstur Íslandssjóða gekk vel á árinu og einkenndist af fjárfestingu í vöruþróun ásamt lægri ávöxtun af eignum félagsins en árið 2015, sem skilaði sér í hóflegum hagnaði á árinu," er haft eftir Kjartani Smára Höskuldssyni, framkvæmdastjóra Íslandssjóða í fréttatilkynningu.

„Mikil aukning varð á umsvifum Lausafjársafnsins sem tvöfaldaðist á árinu.

Þrátt fyrir hóflega ávöxtun á verðbréfamörkuðum gekk stýring sjóða áfram vel og státa Íslandssjóðir af frábærum langtímaárangri í innlendum hlutabréfasjóðum sem og skuldabréfasjóðum og blönduðum sjóðum.

Íslandssjóðir hafa allt frá stofnun félagsins árið 1994 haft skýra sérstöðu í stýringu ríkisskuldabréfasjóða. Það er afar ánægjulegt hvernig Íslandssjóðum tekst að halda því forskoti þrátt fyrir stóraukna samkeppni undanfarin ár.“