Árshlutareikningur Fjarskipta hf. fyrir þriðja ársfjórðung 206 var samþykktur af stjórn og forstjóra í dag. Þriðji fjórðungurinn hefur einkennst af flutningum, aukinni samkeppni og verðlækkunum á farsímamarkaði.

Tekjur Fjarskipta námu 3.443 milljónum króna og hafa þar með staðið í stað miðað við þriðja ársfjórðung ársins 2015. Framlegð félagsins nam 1.657 milljónum króna og er því um 5% lækkun að ræða ef borið er saman við sama tímabil í fyrra.

EBITDA hagnaður nam 927 milljónum króna, sem er 10% lægri útkoma er árið 2015. EBITDA hlutfall félagsins var 26,9% og EBIT hlutfall var 16,8% á fjórðungnum. Samkvæmt tilkynningu frá félaginu er talið að EBITA horfur fyrir árið verði færðar niður og eru nú áætlaðar í kringum 3,1 milljarð fyrir árið 2016.

Hagnaður tímabilsins nam 391 milljónum króna, sem er 22% lækkun frá þriðja ársfjórðungi 2015. Eiginfjárhlutfall félagsins nam 45,1%.

Stefán Sigurðsson, forstjóri Fjarskipta hf., segir í tilkynningunni að flutningar, samkeppni og verðlækkanir hafi haft mikil áhrif.

„Einskiptiskostnaður vegna húsnæðismála nam 50 milljónum króna, einkum í tengslum við flutninga og skil á eldri höfuðstöðvum í Skútuvogi en einnig undirbúning nýrra höfuðstöðva við Suðurlandsbraut. Lækkun í framlegð á fjórðungnum kemur einnig að nokkrum hluta til vegna einskiptisliða við kaup á efni til styrkingar sjónvarpsþjónustu félagsins og gefur því ekki góða mynd af framtíðarþróun félagsins.

Meðaltekjur af viðskiptavinum, bæði einstaklingum og fyrirtækjum, lækkuðu og höfðu áhrif á tekjuvöxt á fjórðungnum þrátt fyrir góða fjölgun viðskiptavina það sem af er árs. Áhrif hagræðingaraðgerða sem hófust á fyrsta ársfjórðungi héldu áfram að skila árangri. Aukning launakostnaðar félagsins á fjórðungnum á milli ára er t.a.m. innan við helmingur af hækkun launavísitölu á ársgrundvelli.“

Stefán telur einnig að kjarasamningahækkanir, lækkanir verðs á farsímamarkaði á Íslandi og í Færeyjum, séu metin yfir 400 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins sem hafi að lokum haft áhrif á EBITDA horfur ársins.

Þrátt fyrir lækkun EBITDA horfa er útlit fyrir að ýmis verkefni sem fyrirtækið hefur unnið að muni hafa jákvæð áhrif á árinu 2017. Lægri starfsmannakostnaður mun hafa jákvæð áhrif á næsta ári, húsnæðiskostnaður félagsins mun dragast saman frá byrjun árs og hagræðing í tengslum við Sendafélagið mun hafa aukin áhrif þegar líður á árið.

Horfur félagsins fyrir árið 2017 verða kynntar í heild sinni þegar þær liggja fyrir. Félagið vinnur samkvæmt tilkynningunni enn að áreiðanleikakönnun á ljósvakamiðlum og fjarskiptastarfsemi 365, en gera má ráð fyrir niðurstöðu í þeim viðræðum á fjórðungnum.