Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna ársins 2015. Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 616 milljónum króna á árinu, samanborið við 188 milljónir árið áður.

Hreinar rekstrartekjur námu 1.569 milljónum króna á árinu 2015 samanborið við 1.104 milljónir króna rekstrarárið 2014. Eignir í stýringu jukust um 18 milljarða á milli ára og voru 129 milljarðar í lok árs.

Eigið fé Landsbréfa í árslok 2015 nam um 2.448 milljónum króna samanborið við 1.832 milljónir króna í lok 2014. Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var 86,5%, en hlutfall þetta má lægst vera 8%. Stjórnin leggur ekki til að greiddur verði út arður vegna rekstrarársins 2015 en að hagnaði verði ráðstafað til hækkunar á eigin fé félagsins.

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:

„Rekstur félagsins gekk vel á árinu og skilaði eigendum góðri arðsemi. Á árinu varð umtalsverður vöxtur á eignum í stýringu Landsbréfa og grunnur lagður að heilbrigðum rekstri til framtíðar. Sjóðir Landsbréfa skiluðu fjárfestum almennt góðri ávöxtun á árinu 2015 og þá ekki hvað síst hlutabréfasjóðir félagsins. Landsbréf annast með rekstri sjóða sinna stýringu á fjármunum um 13 þúsund viðskiptavina. Í því felst ábyrgð sem starfsfólk félagsins leggur metnað sinn í að axla í þágu þessara viðskiptavina. Sá góði árangur sem náðist á árinu 2015 leggur grunninn að ánægju viðskiptavina og treystir þar með góðan rekstur Landsbréfa, enda fara hagsmunir viðskiptavina og félagsins saman.“

Eigendur Landsbréfa eru tveir, Blámi fjárfestingarfélag sem á 0,01% og Eignarhaldsfélag Landsbankans sem á 99,99%.