Hagnaður Össurar á fjórða ársfjórðungi 2018 nam 34 milljónum Bandaríkjadala, eða sem samsvarar 4,1 milljarði íslenskra króna. Er það aukning frá 23 milljóna dala hagnaði fyrir sama tímabil í fyrra.

Hagnaðurinn nam um 20% af sölu félagsins, en hún nam 168 milljónum dala, eða 20 milljörðum íslenskra króna á ársfjórðungnum. Var það vöxtur um 12% í staðbundinni mynt, en innri vöxturinn nam 4%.

Þar af var innri vöxtur í stoðtækjum 6% og 3% í spelkum og stuðningsvörum. Söluvöxtur var einna helst drifinn áfram af hátæknivörum félagsins segir í fréttatilkynningu.

EBITDA fyrir einskiptisliði í fjórða ársfjórðungi 2018 nam 33 milljónum Bandaríkjadala (4 milljörðum íslenskra króna) eða 20% af sölu. Aukin sala á hátæknivörum, aukin hagkvæmni í rekstri og gjaldeyrishreyfingar höfðu jákvæð áhrif á EBITDA framlegð.

8,6 milljarða hagnaður á árinu

Fyrir árið í heild nam hagnaður félagsins 80 milljónum dala, eða sem samsvarar 8,6 milljörðum íslenskra króna, sem er 13% af sölu, og aukning hagnaðar um 38% frá árinu 2017.

Nam salan á árinu 2018 613 milljónum dala, eða sem samsvarar 66 milljörðum íslenskra króna. Nam vöxtur í staðbundinni mynt 7% á árinu og innri vöxturinn 5%. Var hann jafnframt 7% í stoðtækjunum en 2% í spelkum og stuðningsvörum.

EBITDA fyrir einskiptisliði ársins 2018 nam 115 milljónum Bandaríkjadala (12 milljörðum íslenskra króna) eða 19% af sölu. Aukningu í EBITDA framlegð má rekja til aukinnar sölu á hátæknivörum, stærðarhagkvæmni, verkefna um aukna hagkvæmni í rekstri og gjaldeyrishreyfinga segir í fréttatilkynningu félagsins.

Árið 2017 tilkynnti Össur um verkefni til að auka hagkvæmni í rekstri á sviði framleiðslu, dreifingar og innkaupa með áætlaðan sparnað upp á 10 milljónir Bandaríkjadala (1,1 milljarð íslenskra króna) við árslok 2020.

Ávinningur af verkefninu hafði jákvæð áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins og ráðist hefur verið í ýmsar fjárfestingar til að ná markmiðum um um aukna hagkvæmni í rekstri á þessu og næsta ári.

Össur keypti fjögur fyrirtæki á síðasta ári. Þrjú fyrirtæki voru keypt í fjórða ársfjórðungi en tvö þeirra höfðu engin áhrif á rekstrarafkomu í fjórða ársfjórðungi. Sameiginleg ársvelta fyrirtækjanna nemur um 70 milljónum Bandaríkjadala (7,5 milljörðum íslenskra króna).

Arðurinn 1,1 milljarður

Á aðalfundi 2019 mun stjórn Össurar leggja til að félagið greiði DKK 0.14 í arð á hlut fyrir árið 2018, sem er 8% aukning frá DKK 0.13 á hlut í fyrra. Nemur það um 1,1 milljarði íslenskra króna.

Stjórnin mun einnig leggja til að hlutafé félagsins verði lækkað um 5.430.259 kr. sem samsvarar þeim 5.430.259 eigin hlutum sem Össur keypti á árinu 2018.

Fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2019 er 4-5% innri vöxtur, um 23% EBITDA framlegð að teknu tilliti til einskiptisliða, 4-5% fjárfestingarhlutfall og virkt skattahlutfall á bilinu 23-24%.