Loðnuvinnslan h/f á Fáskrúðsfirði, hagnaðist um 700 milljónir króna á síðasta ári, sem er aukning um 135% frá árinu 2017. Hreint veltufé frá rekstri var 1.523 millljónir sem er 88% meira en 2017.

Tekjur LVF af frádegnum eigin afla voru um 9,1 milljarður króna sem er 24% veltuaukning milli ára. Eigið fé félagsins í árslok 2018 var tæpir 8 milljarðar  sem er 54% af niðurstöðu efnahagsreiknings.

Samþykkt var að greiða 15% arð til hluthafa eða 105 milljónir króna, en stærsti hluthafi félagsins er Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga með 83% eignarhlut. Hluthafarnir eru alls um 174, og en 10 stærstu þeirra áttu 98,19% í félaginu við árslok 2015.

Rekstur Loðnuvinnslunnar hefur verið ágætur síðustu ár að því er segir á vef félagsins , hagnaður hefur verið samtals 5,6 milljarðar síðustu 5 ár, fjármunamyndun 7 milljarðar og eigið fé hefur vaxið úr tæpum 3 milljörðum í tæpa 8 milljarða.

Stjórn Loðnuvinnslunnar er þannig skipuð:

  • Elvar Óskarsson formaður,
  • Steinn Jónasson,
  • Högni Páll Harðarson,
  • Elsa Sigrún Elísdóttir
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir.

Varamenn eri Jónína Óskarsdóttir og Unnsteinn Kárason.

Um Loðnuvinnsluna h/f (LVF)

Loðnuvinnslan h/f var stofnuð á í októberlok árið 2001. Rekstur fyrirtækisins varð til við samruna sjávarútvegshluta og iðnaðarstarfsemi Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og Loðnuvinnslunnar h/f., sem rak nýja fiskimjölsverksmiðju frá því í janúar 1996, en það félag var stofnað 20. september 1994. Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga (KFFB) var hins vegar stofnað var 6. ágúst árið 1933.