Upplýsingar um hagsmunatengsl hæstaréttardómara verða aðgengilegar á heimasíðu réttarins frá byrjun komandi árs. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hæstarétti Íslands, en eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um þá hefur verið mikil umræða um hagsmunatengsl dómara undanfarið.
„Hæstiréttur hefur ákveðið að frá byrjun árs 2017 verði aðgengilegar á heimasíðu réttarins upplýsingar um hagsmunatengsl hæstaréttardómara,“ segir í tilkynningu réttarins.
„Við ákvörðun um efni þessara upplýsinga hefur verið tekið mið af því sem dómurum ber að tilkynna nefnd um dómarastörf um samkvæmt fyrirmælum 26. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla og reglum settum samkvæmt þeim.
Eignir og skuldir dómara birtar
Jafnframt hefur verið litið annars vegar til reglna Alþingis um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings og hins vegar til þess hvernig atriðum sem þessum er hagað á Norðurlöndunum.
Á þessum grunni munu upplýsingarnar varða eftirfarandi meginatriði:
- Aukastörf hvers og eins dómara ásamt því hvort greiðsla komi fyrir þau og þá úr hendi hvers.
- Fasteignir í eigu dómara sem ætlaðar eru til annars en eigin nota fyrir hann og fjölskyldu hans.
- Eignarhluta í hvers kyns félögum.
- Allar skuldir dómara sem ekki tengjast beinlínis öflun fasteignar til eigin nota.
- Aðild dómara að félögum sem ekki starfa með fjárhagslegu markmiði.
Upplýsingar þessar munu miðast við stöðu í ársbyrjun 2017 og verða þær framvegis uppfærðar jafnskjótt og tilefni er til.
Telji aðilar að einstökum dómsmálum sig þurfa að fá tilgreindar upplýsingar um eitthvert áðurgreindra atriða á tilteknu fyrra tímamarki varðandi dómara í málum þeirra geta þeir beint fyrirspurn um það til Hæstaréttar.“