Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs hækkaði milli áranna 2014 og 2015. Í fiskveiðum og -vinnslu hækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 24,3% í 27%, hækkaði í fiskveiðum úr 20,5% árið 2014 í 25,7% af tekjum árið 2015 og lækkaði í fiskvinnslu úr 14,2% í 13,5%. Þetta er meðal þess sem kemur fram í Hagtíðindum Hagstofu Íslands um Hag veiða og vinnslu 2015 .

Hreinn hagnaður í sjávarútvegi, samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 17,5% árið 2015 samanborið við 15% árið áður. Það þýðir því að hagnaðurinn nam 45,4 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð 24,4 milljarðar. Sé miðað við hefðbundna uppgjöraðferð er niðurstaðan 18,2% hagnaður 2015 eða 47,1 milljarður samanborið við 15,1% hagnað árið 2014.

„Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir sjávarútvegs í árslok 2015 tæpir 590 milljarðar króna, heildarskuldir tæpir 370 milljarðar og eigið fé rúmir 220 milljarðar,“ er einnig tekið fram.