Leiðandi hagvísir Analytica, sem gefur vísbendingum um efnahagsumsvif eftir hálft ár, hækkaði annan mánuðinn í röð, nú um 0,6%. Yngvi Harðarson hagfræðingur rekur Analytica. Of snemmt er að segja til um hvort hækkunin nú gefi til kynna aukningu hagvaxtar á ný en hagvísirinn hefur bent til að hægja sé á hagvexti niður á eðlilegra stig, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Þrír af sex undirliðum hækka frá í ágúst. Aukning mælist í verðmæti fiskafla, innflutningi og heimsvísitölu hlutabréfa. Aukinn afli hefur mest áhrif til hækkunar hagvísisins. Langtímauppleitni mikilvægra undirþátta er enn sterk. Áfram eru áhættuþættir í ytra umhverfi sem ógnað gætu hagvexti einkum tengdir stöðunni í alþjóðastjórnmálum. Langvinn stjórnarkreppa í kjölfar þingkosninga í lok mánaðarins gæti einnig haft neikvæð áhrif.

Hagvísirinn er vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum. Það er hlutverk vísitölunnar að veita skýra sýn á efnahagshorfur og vara tímanlega við viðsnúningi í efnahagsumsvifum. Vísitalan er reiknuð á grundvelli sömu aðferðafræði og annars staðar þar sem sambærilegar vísitölur eru reiknaðar en sérstaklega er tekið mið af verklagi OECD.

Reynt að mæla aðdraganda framleiðslu

Leiðandi hagvísir Analytica er samansettur úr sex undirþáttum af mismunandi toga. Um er að ræða aflamagn, debetkortaveltu, ferðamannafjölda, heimsvísitölu hlutabréfa, innflutning og væntingavísitölu Gallup. Í september hækka þrír af sex undirþáttum frá fyrra ári. Frá í ágúst hækka einnig þrír af sex undirþáttum.

Hugmyndin að baki vísitölunni er sú að framleiðsla hefur aðdraganda. Vísitalan er reiknuð á grundvelli þátta sem mælast í upphafi framleiðsluferilsins og/eða veita vísbendingar um eftirspurn eftir vörum og þjónustu. Til að unnt sé að auka framleiðslu þarf t.d. að afla aðfanga og stofna til fjárfestinga.

Leiðandi hagvísir Analytica hækkar um 0,6% í september og tekur gildið 100,1, sjá töflu 1. Sú tala á að gefa vísbendingu um framleiðslu sex mánuðum síðar þ.e. í mars 2018. Hagvísirinn tekur gildið 100 þegar búist er við að landsframleiðsla sé í takt við langtímaleitni.