Hagvöxtur í Bandaríkjunum dróst mikið saman fyrstu þrjá mánuði ársins frá síðustu þremur mánuðum síðasta árs að því er hagstofa landsins greinar frá.

Nam hagvöxturinn í landinu 0,7% á ársgrundvelli á fyrsta ársfjórðungi ársins en á síðasta ársfjórðungi ársins 2016 nam hann 2,1%. Þó er tekið fram að hagvöxtur fyrstu þrjá mánuði ársins hefur almennt verið lítill síðustu árin.