Hagvöxtur á evrusvæðinu var 0,4% á þriðja ársfjórðungi en það er óbreytt frá öðrum ársfjórðungi.

Hagvöxtur var mestur í Þýskalandi en þó hægir örlítið á hagvexti þar frá siðasta ársfjórðungi. Þessar tölur taka þó ekki tillit til þeirra áhrifa sem mikil verðlækkun á hlutabréfum Volkswagen muni hafa á hagvöxt í Þýskalandi.