Rekstrarniðurstaða Kópavogsbæjar var neikvæð um 128 milljónir króna á fyrri hluta ársins, en gert hafði verið ráð fyrir 117 milljóna króna halla á rekstri bæjarins á tímabilinu. Þetta kemur fram í árshlutareikningi Kópavogs.

Í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að rekstur fyrri hluta árs komi að jafnaði verr út en á seinni hluta vegna þess að á fyrri hluta ársins falli aðeins um 48-49% af skatttekjum ársins en stærri hluti útgjalda á ýmsum sviðum.

„Miðað við árferði þá erum við nokkuð sátt. Launaáætlun gengur eftir í stórum dráttum og þá höfum við nú rétt eins og undanfarin ár lagt áherslu á aðhald í rekstri. Hins vegar þá óttast ég bakreikninga vegna nýrra kjarasamninga, breytinga á starfsmati og endurreiknaðra lífeyrisskuldbindinga sem munu hafa áhrif á niðurstöðu ársreiknings Kópavogsbæjar,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogsbæjar.

Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir fjármagnsliði, afskriftir og lífeyrisskuldbindingar var jákvæð um 1.895 milljónir króna. Þetta þýðir að framlegðarhlutfall samstæðu var um 16,3% en í reglum frá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga er gert ráð fyrir að framlegðarhlutfallið sé á bilinu 15-20 %.