Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur undirritað reglugerð um hækkun á greiðslum til foreldra í fæðingarorlofi frá 1. janúar 2019. Óskertar greiðslur hækka úr 520.000 kr. í 600.000 kr. á mánuði. Velferðarráðuneytið greinir frá þessu í fréttatilkynningu .

Ásmundur Einar segir þessa hækkun mikilvæga og sýna í verki áherslur stjórnvalda á að efla stuðning við börn og barnafjölskyldur. Ráðherra segir áfram verða unnið að því að styðja betur við foreldra í fæðingarorlofi og þar sé meðal annars horft til þess að lengja fæðingarorlofið. „Þetta er mikilvægt velferðarmál og eins vil ég nefna sérstaklega að þetta er tvímælalaust lóð á vogarskálar aukins kynjajafnréttis."

Aukin framlög ríkisins vegna hækkunar hámarksgreiðslna fæðingarorlofs 1. janúar næstkomandi eru áætluð um 1,8 milljarður króna á ársgrundvelli.

Aðrar greiðslur hækka um 3,6%
Auk þess að hækka greiðsluþakið hækka aðrar greiðslur um 3,6%, samkvæmt tilkynningu á vef Fæðingarorlofssjóðs . „Við hækkuðum hámarksgreiðslurnar um 20.000 í byrjun þessa árs. Nú stígum við stærra skref með umtalsverðri hækkun sem er til þess fallin að koma tekjulágum foreldrum til góða." er haft eftir ráðherra.