Hamborgarabúlla Tómasar opnar nýtt útibú í Kaupmannahöfn í maí og eru framkvæmdir í fullum gangi þessa dagana.

Fréttablaðið greinir frá því að Valdimar Geir Halldórsson verði rekstrarstjóri. Valdimar er einn af eigendum fyrirtækisins Besta boð sem rekur samnefnda vefsíðu. Áður en hann flutti út átti hann helminginn í versluninni Macland og Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda, auk þess sem hann kom gistihúsinu Reykjavík Backpackers á laggirnar.

Búllan verður staðsett við götuna Høkerboderne í Kødbyen, sem er gamalt iðnaðarsvæði við hliðina á Istegade sem hefur verið í uppbyggingu síðustu ár.