Hampiðjan hefur ákveðið að stofna sölufyrirtæki í Brisbane á austurströnd Ástralíu til að sinna þörfum markaðarins fyrir net, kaðla og ofurtóg. Þetta kemur fram í tilkynningu .

„Um árabil hefur Hampiðjan rekið fyrirtækið Hampidjan New Zealand á tveim stöðum á Nýja Sjálandi og hefur það fyrirtæki selt inn á ástralska markaðinn. Vegna fjarlægðar og dýrra flutninga hefur það ekki skilað tilætluðum árangri og því er það skref stigið að stofna nýtt fyrirtæki á þessu markaðssvæði,“ segir í tilkynningunni. Fyrirtækið á Nýja Sjálandi verður áfram rekið með óbreyttu sniði og getur nú einbeitt sér að fullu að markaðinum þar.

Fyrirtækið, sem mun bera nafnið Hampidjan Australia, verður stofnað í samstarfi við Þorstein Benediktsson sem hefur búið og unnið í Ástralíu undanfarin átta ár og rekið þar fyrirtæki sem hafa sinnt sjávarútvegi og selt vörur til útgerða með góðum árangri.

Hampiðjan mun eiga 80 prósent af hlutafé nýja fyrirtækisins og Þorsteinn 20 prósent.  Þá mun Þorsteinn einnig verða framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Samhliða því að selja vörur Hampiðjunnar mun Hampidjan Australía selja vörur til útgerðar frá öðrum framleiðendum.

Fyrir utan sölu til sjávarútvegs undanfarin ár hefur Hampiðjan selt töluvert af ofurtógi á skútumarkaðinn í Ástralíu og í olíuiðnaðinn sem er vestan til við Ástralíu. Þess er vænst að starfsemin hefjist í lok þessa mánaðar og byggist upp að mestu innan þessa árs.