Frá 1. ágúst næstkomandi tekur Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir við sem ritstjóri Gestgjafans, en hún hefur starfað sem blaðamaður á blaðinu í mörg ár.

Hanna Ingibjörg hefur auk starfa fyrir Gestgjafann unnið fyrir franska sendiráðið og sem kennari í Réttarholtsskóla. Hún er með B.Ed. í grunnskólakennarafræðum frá HÍ og er hún gilft Kjartani Valdemarssyni, hljómlistarmanni og eiga þau tvær dætur.

Segir í fréttatilkynningunni að Hún sé „með brennandi áhuga á hvers kyns matargerð og matartengdri menningu.“