Hannes Árdal hefur tekið við störfum hjá verðbréfafyrirtækinu Íslenskir fjárfestar, en hann lét af störfum hjá Fossum í byrjun aprílmánaðar. Hannes útskrifaðist sem stærðfræðingur frá HÍ árið 2005 og lauk meistaranámi í fjármálaverkfræði frá HÍ árið 2013.

Hannes var einn þeirra sem stofnuðu verðbréfafyrirtækið Fossar markaðir hf. í byrjun árs 2015, en hann lét af störfum þar í apríl 2017 og seldi jafnframt hlut sinn í félaginu. Þar áður starfaði hann hjá Straumi fjárfestingabanka á árinum 2012 til 2015, en fyrir það starfaði hann hjá Arion banka og forverum hans.