Haraldur Johannessen hefur verið ráðinn ritstjóri Viðskiptablaðsins við hlið Jónasar Haraldssonar ritstjóra.

Haraldur er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur starfað sem sérfræðingur í Greiningardeild Landsbanka Íslands frá árinu 2006. Hann var aðstoðarmaður umhverfisráðherra á árunum 2004 til 2006. Haraldur nýtur einnig reynslu sinnar af blaðamennsku en á árunum 2000 til 2004 var hann blaðamaður á viðskiptablaði Morgunblaðsins.

Framtíðarsýn, útgáfufélag Viðskiptablaðsins, býður Harald velkominn en hann hefur störf 15. september næstkomandi.