Haraldur Örn Ólafsson framkvæmdastjóri Íslandssjóða hefur sagt starfi sínu lausu hjá félaginu eftir fjögurra ára starf hjá Íslandssjóðum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Íslandsbanka.

Þar er tekið fram að Haraldur Örn sé hæstaréttarlögmaður og hafi víðtæka reynslu af störfum á fjármálamarkaði. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra í júní 2012. Á þeim tíma hefur hann stýrt félaginu með farsælum hætti, unnið ötullega að uppbyggingu þess í kjölfar ölduróts og umbreytinga sem fjármálamarkaðurinn hefur gengið í gegnum á síðustu árum.

Í tilkynningunni er haft eftir Tanya Zharov, stjórnarformanni Íslandssjóða að hann hafi tekið við Íslandssjóðum á miklum umbrotatíma á fjármálamörkuðum og að hann hafi leitt félagið í gegnum umfangsmikið umbreytingaferli. „Samstarfið við Harald hefur verið bæði árangursríkt og ánægjulegt og óskar stjórn félagsins honum velfarnaðar í framtíðinni“ segir í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að: „Haraldur Örn þakkar samstarfsfólki og stjórn fyrir einstaklega gott og ánægjulegt samstarf á undanförnum árum. „Uppbygging félagsins hefur gengið framúrskarandi vel á erfiðum tímum og geta starfsmenn félagsins verið stoltir af þeim góða árangri," segir Haraldur Örn og bætir við að hann komi til með að vera stjórn félagsins innan handar þar til að nýr framkvæmdastjóri verður ráðinn.“