Samkvæmt greiningu ASÍ á stöðu leigumarkaðarins fjölgaði leigjendum fjölgaði mikið í kjölfar hrunsins ásamt því sem íbúðaskortur og hátt verð virðast einkenna stöðuna.

Útleiga til ferðamanna hefur einnig aukist og dregið úr framboði á almennum leigumarkaði.

Gerð var könnun á leiguverði eins og það birtist neytendum samkvæmt leiguauglýsingum á höfuðborgarsvæðinu.

Þær tölur voru bornar saman við verð samkvæmt þinglýstum leigusamningum og í ljós kom mikill verðmunur.Samkvæmt greiningunni var í sumum tilfellum yfir 30% hærra verð að finna í leiguauglýsingum.

Einnig mældi greining ASÍ hlutfall ráðstöfunartekna sem fer í leigu hjá mismunandi hópum samfélagsins samkvæmt því verði sem birtist í leiguauglýsingum. Í sumum tilfellum má ætla að 58% ráðstöfunartekna fari í leigu á almennum leigumarkaði. Að mati ASÍ er æskilegt að þetta hlutfall sé ekki hærra en 25%.