Haukur Jarl Kristjánsson hefur verið ráðinn til The Engine sem sér um markaðssetningu á netinu. The Engine er dótturfyrirtæki auglýsingastofunnar Pipars\TBWA. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Haukur Jarl býr yfir mikilli reynslu af leitarvélamarkaðssetningu og hefur unnið til tveggja verðlauna, fyrst með The Engine fyrir bestu PPC-herferðina á European Search Awards 2014 og núna í apríl síðastliðnum með Delivery Hero fyrir árangursríkustu notkun tækni í leitarherferð (Most Effective Use of Technology in a Search Campaign) á The Drum Search Awards.

Haukur Jarl hefur búið og starfað í Berlín síðan árið 2015. Í fyrstu hjá Foodpanda, þar sem hann var yfir leitarvélamarkaðssetningu fyrirtækisins. Síðar tók hann við 15 manna markaðsteymi hjá Delivery Hero sem er leiðandi fyrirtæki í heimsendingum á mat. Delivery Hero starfar í rúmlega 40 löndum, sér um meira en 250 þúsund veitingastaði og afgreiddi rúmlega 369 milljónir pantanir á síðasta ári.

„Þetta var mikil áskorun að starfa fyrir stórfyrirtæki á risastórum markaði. Það starfa rúmlega 19.000 manns á heimsvísu hjá Delivery Hero og þar af er markaðsdeildin í höfuðstöðvunum í Berlín um 200 manns. Ég var ábyrgur fyrir miklum fjárhæðum og að þeim væri eytt skynsamlega í leitarvélamarkaðssetningu sem er gríðarlega mikilvæg fyrir fyrirtæki sem ætla sér að ná góðum árangri á netinu," segir Haukur Jarl sem stýrði teymi sem sá um daglegan rekstur herferða á margvíslegum tungumálum.

„Seinna var ég svo í forsvari fyrir fjölbreytt teymi sem einbeitti sér alfarið að tækni sem tengist netmarkaðssetningu. Þar bættist við mikil reynsla í bankann sem ég tek með mér hingað. Það er áhugaverður og spennandi markaður hér heima og ég mun koma til með innleiða þessa aðferða- og hugmyndafræði fyrir viðskiptavini The Engine. Hér á landi eru mikil sóknarfæri í þessum geira, ekki síst fyrir fyrirtæki sem ætla sér að ná árangri í markaðssetningu á netinu," segir Haukur Jarl.

Haukur Jarl starfaði árin 2008-2015 hjá Nordic eMarketing sem varð síðar að The Engine. Hann hefur komið að uppsetningu og bestun yfir hundrað GoogleAds-reikninga á yfir 15 tungumálum.