Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,34% í dag og stendur því nú í 1.710,61 stigum. Heildarvelta á mörkuðum nam 10,8 milljörðum. Velta á hlutabréfamarkaði nam 3,7 milljörðum og 7,1 á skuldabréfamarkaði.

Gengi hlutabréfa HB Granda hækkaði um 1,98% í 125 milljón króna viðskiptum. Einnig hækkaði gengi hlutabréfa 1,12% í 1.130 milljón króna viðskiptum. Gengi hlutabréfa Sjóvá hækkaði jafnframt um 1,93% í 360 milljón króna viðskiptum.