Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,2% í viðskiptum dagsins. Heildarvelta á mörkuðum nam ríflega 8,6 milljjörðum og þar af var velta á Aðalmarkaði hlutabréfa 2,2 milljarðar og 6,4 milljarðar á skuldabréfamarkaði.

Gengi bréfa HB Granda lækkaði mest eða um 1,14% í 207 milljón króna viðskiptum. Mest velta var með bréf Haga en gengi þeirra lækkaði lítillega í viðskiptum dagsins eða um 0,18% í 413 milljón króna viðskiptum. Eina úrvalsvísitölufélagið þar sem gengi bréfa hækkaði var N1 en það hækkaði um 0,39% í 79 milljón króna viðskiptum.

Utan Úrvalsvísitölufélaga þá hækkaði gengi bréfa Össurar mest eða um 2,63% en þó í tiltölulega litlum viðskiptum eða 10,5 milljón króna viðskiptum. Einnig hækkaði gengi bréfa nýliðans á markaðinum, Skeljungs, um 1,8% í 48,5 milljón króna viðskiptum.

Vísitölur GAMMA

Markaðsvísitala GAMMA  stóð í stað í dag í 6,7 milljarða viðskiptum. Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,1% í dag í 2,2 milljarða viðskiptum.


Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í dag í 3,9 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 0,2 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 3,6 milljarða viðskiptum.