Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq lækkaði um 0,04%. Heildarvelta á mörkuðum nam 5.226 milljónum króna, þar af nam velta á hlutabréfamarkaði 2,6 milljörðum og 2,57 milljörðum á skuldabréfamarkaði.

Gengi hlutabréfa Nýherja hækkuðu um 3,69% í 60,4 milljón króna viðskiptum. Hins vegarlækkaði gengi hlutabréfa HB Granda um 3,59% 208 milljón króna viðskiptum. Afkoma félagsins verður birt eftir lokun markaða.

Mest velta var með bréf Marel en gengi hlutabréfa félagsins hækkaði um 1,08% í 846,7 milljón króna viðskiptum.