Ferðamálastofa og Hagstofa Íslands hafa gengið að tilboði um framkvæmd landamærarannsóknar á Keflavíkurflugvelli. Verkefnið var boðið út á vegum Ríkiskaupa á Evrópska efnahagssvæðinu í október síðastliðnum. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands .
Tilboð danska markaðsrannsóknarfyrirtækið Epinion P/S var metið hagstæðast fyrir kaupanda samkvæmt valforsendum útboðslýsingar. Landamærarannsóknin er fjármögnuð fyrir aukafjárveitingu af fjárlögum í rannsóknir tengdum ferðaþjónustu. Rannsóknin kemur til með að beinast að ferðamönnum á leið frá Íslandi og mun byggja á gagnaöflun á Keflavíkurflugvelli. Könnuninni verður fylgt eftir með netkönnun meðal svarenda.
„Gert er ráð fyrir að birta niðurstöður mánaðarlega á vef Ferðamálastofu. Með rannsókninni verður til áreiðanlegri tölfræði um fjölda, útgjöld, atferli og viðhorf ferðamanna. Niðurstöður munu nýtast í útgáfum Hagstofunnar varðandi þjónustuviðskipti við útlönd, gistinætur, þjóðhagsreikninga og ferðaþjónustureikninga,“ segir í frétt Hagstofu Íslands.