Í lok febrúar mun Eimskip gera breytingar á siglingakerfi sínu og bæta við sig einu 700 gámaeininga skipi. Saman mun þetta auka afkastagetu félagsins í flutningum til og frá Evrópu og Norður-Ameríku um 7-11% að því er segir í fréttatilkynningu félagsins.

Gylfi Sigfússon forstjóri félagsins segir jafnframt að vegna aukinnar grósku hér á landi hefjist vikulegar siglingar um ströndina á ný.

Helstu breytingar á siglingakerfinu eru þessar samkvæmt tilkynningunni:

  • Ný rauð leið mun þjónusta Ísland, Færeyjar, Danmörku, Noreg, Svíþjóð og Pólland með tveimur skipum. Með rauðu leiðinni eykst afkastageta og skilvirkni siglingakerfisins og tækifæri gefast til vaxtar.
  • Grænu leiðinni, sem þjónustar Bandaríkin og Kanada, verður breytt þannig að hún mun sigla til og frá Íslandi, en með umskipun í Reykjavík verður hægt að auka bæði ferðatíðni og afkastagetu leiðarinnar. Styður sú breyting enn frekar við uppbyggingu flutninga á milli Norður-Ameríku og Evrópu, en góður vöxtur hefur verið í þeim flutningum undanfarin ár.
  • Gráa leiðin, sem verið hefur í þjónustu við Færeyjar, Skotland og Skandinavíu, fær nú annað hlutverk en verið hefur þar sem hún mun framvegis sinna vikulegri þjónustu í strandflutningum á Íslandi, auk þess að þjóna áfram Færeyjum og Skotlandi. Ferðatíðni og afkastageta í strandsiglingum mun aukast með vikulegum siglingum gráu leiðarinnar norður fyrir Ísland til Bretlands, með viðkomu í Færeyjum þar sem tenging næst við önnur skip félagsins. Strandflutningum verður eins og áður sinnt af bláu og gulu leiðinni sem þjónusta Grundartanga, Reykjavík, Helguvík, Vestmannaeyjar og Reyðarfjörð.
  • Þjónusta bláu og gulu leiðarinnar verður óbreytt frá því sem er í dag.
  • Með þessum breytingum er einnig dregið úr álagi á höfnina í Þórshöfn í Færeyjum þar sem stærstum hluta þeirra gáma sem áður var umskipað í Þórshöfn þarf ekki lengur að umskipa þar sem þeir ná nú beinni tengingu á milli hafna.

Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskip segir breytingarnar styrkja kerfið í heild og bæta þjónustuna.

„Þessar breytingar á siglingakerfi Eimskips koma til með að styrkja kerfið í heild sinni og bæta þjónustuna," er haft eftir Gylfa í tilkynningunni.

„Flutningaþarfir viðskiptavina okkar taka sífelldum breytingum, en mikilvægt er fyrir félagið að geta mætt breyttri eftirspurn með því að auka afkastagetu, áreiðanleika og opna fyrir möguleika til vaxtar.

Aukin gróska hefur einnig verið víða um land hér á Íslandi og því munum við aftur bjóða uppá vikulegar siglingar um ströndina.

Breytingarnar auka enn á vaxtartækifæri Eimskips á markaðssvæði félagsins á Norður-Atlantshafi og framundan er uppbygging á hafnarsvæðum í Reykjavík, Þórshöfn í Færeyjum og Nuuk á Grænlandi sem gefa mun færi á notkun stærri skipa á svæðinu, en stærri skip munu leiða til hagkvæmari og umhverfisvænni flutninga.“