Úrsus ehf., fjárfestingarfélag Heiðars Guðjónssonar, hefur lagt fram kröfu um gjaldþrotaskipti á hendur slitabúi Kaupþings. Þetta staðfestir Heiðar í samtali við Viðskiptablaðið.
„Það er svo langt um liðið frá því að þessi bú voru tekin til slitameðferðar. Það er ótrúlegt að þetta skuli ekki hafa komið inn á borð dómstóla fyrr. Ég var í nokkur ár að leita að kröfum, fann þær loksins og ákvað að gera þetta,“ segir Heiðar.
Sem kunnugt er lagði Heiðar einnig fram gjaldþrotakröfu á hendur slitabúi Glitnis, en rétt áður en taka átti kröfuna fyrir í héraðsdómi í þarsíðustu viku var fjárkrafa hans greidd upp af erlendum aðila. Var gjaldþrotakrafan því aldrei tekin fyrir.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Meðal annars efnis í blaðinu er:
- Lars og Heimir eru frábærir stjórnendur.
- Matsmaður metur áhrif öfugs samruna fyrir Toyota.
- Hlutur Landsbankans á verðbréfamarkaði þrefaldast.
- Þrír víkja sæti í máli Ólafs Ólafssonar.
- Alexis Tsipras er á milli steins og sleggju.
- Laxveiðitímabilið hefst á morgun, og spennandi tímar eru fram undan.
- Frosti Sigurjónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, er í ítarlegu viðtali.
- Huginn og Muninn eru á sínum stað auk Týs sem fjallar um „trausta eigendur" fjármálafyrirtækja.
- Óðinn fjallar um staðsetningu Landspítalans.
- Þá eru í blaðinu myndir, greinar, skoðanapistlar, fréttir af fólki og margt fleira.