Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum ágústmánuði var 12% meiri en í ágúst 2006, sé hann metinn á föstu verði að því er kemur fram í frétt Hagstofunnar. Það sem af er árinu hefur fiskaflinn aukist um 2,2% á föstu verði miðað við sama tímabil 2006. Aflinn nam alls 89.096 tonnum í ágúst 2007 samanborið við 89.566 tonn í ágúst 2006.

Í frétt Hagstofunnar kemur fram að botnfiskafli dróst saman um tæp 600 tonn frá ágústmánuði 2006 og nam tæpum 37.000 tonnum. Þorskafli dróst saman um rúm 1.000 tonn, ýsuaflinn jókst um tæp 3.200 tonn og ufsaaflinn dróst saman um tæplega 2.200 tonn.

Flatfiskaflinn jókst um rúmlega 400 tonn milli ára. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 49.700 tonnum og var að stærstum hluta síld, makríll og kolmunni. Uppsjávarafli dróst saman um tæplega 600 tonn miðað við ágúst 2006. Skel- og krabbadýraafli var tæplega 500 tonn samanborið við rúmlega 200 tonna afla í ágúst 2006.

Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.