Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur á grundvelli tillagna Hafrannsóknarstofnunnar ákveðið að auka heildarafla íslenskra skipa á loðnu í alls 196.075 tonn á þessari vertíð. Áætlað heildarverðmæti loðnuaflans er um 17 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Fyrr í vetur hafði íslenskum skipum verið úthlutað ríflega 12 þúsund tonnum þannig að aukningin er rúmlega sextánföld. Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða verður 5,3% aflans úthlutað á skiptimarkaði, alls 10.392 tonnum.