Heildarlaunakostnaður á greidda stund jókst á milli ársfjórðunga, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar.

Hækkunin nemur 0,3% í samgöngum, 0,6% í byggingarstarfsemi og 1,7% í verslun. Þá var heildarlaunakostnaður óbreyttur frá fyrri ársfjórðungi í iðnaði.

Heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna á greidda stund jókst frá fyrri ársfjórðungi um 0,2% í byggingarstarfsemi. Á sama tímabili dróst þessi sami kostnaður saman um 0,3% í verslun, 0,5% í samgöngum og um 0,8% í iðnaði. Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru greiðslur útilokaðar sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili eins og desember- og orlofsuppbót.

Árshækkun heildarlaunakostnaðar á greidda stund frá öðrum ársfjórðungi í fyrra var á bilinu 1,6% til 5,0%. Mest var hækkunin í iðnaði og samgöngum en minnst í byggingarstarfsemi. Á sama tímabili jókst heildarlaunakostnaður án óreglulegra greiðslna mest í iðnaði eða 10,3% en minnst í verslun 6,5%.