Heilsustofnun Náttúrulækningafélag Íslands í Hveragerði hlaut nýsköpunarverðlaun Heilsulindarsamtaka Evrópu (ESPA) í flokknum Innovation Medical Spa fyrir þróun á heilsuþjónustu fyrir almenning síðastliðinn fimmtudag. ESPA (European Spas Association) eru samtök heilsulinda og heilsumiðstöðva í Evrópu sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni.

Heilsustofnun var stofnuð árið 1955 hugmyndafræði hennar byggist á að efla heilbrigði, auka vellíðan og styrkja einstaklinginn í að bera ábyrgð á eigin heilsu.

,,Heilsustofnun hefur verið leiðandi í fyrirbyggjandi meðferðum þar sem áhersla er lögð á endurhæfingu og heilsusamlega lifnaðarhætti," sagði Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsustofnun. ,,Þessi verðlaun eru mikilvæg viðurkenning á því starfi sem unnin er hjá Heilsustofnun og hvatning til að halda áfram á sömu braut," bætti hún við.