Helga Kristín Jóhannsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Kornsins - handverksbakarís, en hún hefur undanfarin ár starfað sem sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf hjá PwC.

Frá maí 2012 til september 2014 starfaði hún meðal annars sem vörustjóri SensorX hjá Marel en þar áður starfaði hún sem sérfræðingur á gæðasviði hjá Nóa Síríus og sem ráðgjafi hjá Investor ehf.

Helga Kristín er með B.S. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.S. gráðu frá IE Business School í Madrid.