Sjónvarpskonan Helga Arnardóttir hefur verið ráðin yfirritstjóri útgáfufélagsins Birtíngs, sem gefur út fríblaðið Mannlíf og tímaritin Gestgjafann, Hús og híbýli og Vikuna að því er kemur fram í tilkynningu frá Birtíngi.

Helga hefur starfað í fréttaskýringaþættinum Kastljósi hjá Ríkisútvarpinu frá árinu 2014, og auk þess hefur hún framleitt og haft umsjón með heimildarþættinum Meinsærið um rangar sakargiftir í Geirfinnsmálinu og fjögurra þáttaröð um leikferil Eddu Björgvinsdóttur leikkonu. Helga starfaði í 7 ár á Stöð 2 sem fréttamaður í sjónvarpi og útvarpi, vaktstjóri, fréttaþulur og dagskrárgerðarmaður í Íslandi í dag. Á Stöð 2 hafði hún umsjón með þáttunum um Guðmundar- og Geirfinnsmálið, Mannshvörf á Íslandi og Óupplýst lögreglumál.

Hún hefur starfað við blaðamennsku allt frá árinu 2002 og hóf störf sem fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu 2004, þar til hún gekk til liðs við Stöð 2. Hún hlaut MA gráðu í International Journalism frá City University of London árið 2010 með áherslu á sjónvarps-og rannsóknarblaðamennsku. Hún er með BA gráðu í stjórnmálafræði og frönsku frá Háskóla Íslands og stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík.

Helga mun ritstýra Mannlífi og hafa yfirumsjón með áframhaldandi stafrænni uppbyggingu en Birtíngur opnaði nýverið lífstílsvefinn mannlif.is, sem er sameiginlegur vefur allra miðla félagsins.

Mannlífi er dreift inn á öll heimili á höfuborgarsvæðinu og er aðgengilegt á netinu.

„Ég hlakka til að hefja störf hjá Birtíngi og lít á það sem mikla áskorun að takast á við prentmiðla á þessum tímum og finna þeim tryggan farveg í síbreytilegu fjölmiðlaumhverfi,” er haft eftir Helgu í tilkynningu. „Það verður spennandi verkefni að leiða nokkur af vinsælustu tímaritum landsins inn á nýjar brautir í hinum stafræna heimi og koma með ferskt fríblað mánaðarlega um brýn samfélagsmál, sem varða okkur öll og málefni líðandi stundar."