Helgi Björgvinsson hefur verið ráðinn forstöðumaður yfir sölu á hugbúnaðalausnum hjá Advania.

Helgi fer fyrir sölu á sérsniðnum hugbúnaðarlausnum Advania auk lausnum frá lykilbirgjum fyrirtækisins svo sem Salesforce, Software AG, Oracle og Outsystems.

Helgi er með 20 ára reynslu úr upplýsingatæknigeiranum. Hann hefur starfað sem viðskiptastjóri og við sölu og ráðgjöf hjá Origo frá árinu 2007. Þar á undan var hann kerfisstjóri og forstöðumaður yfir upplýsingatækni hjá Air Atlanta.

Advania vinnur með leiðandi fyrirtækjum og stofnunum að þróun hugbúnaðar til að styðja við starfæna ferla, bæta upplifun viðskiptavina og mæta kröfum um hagkvæmni í rekstri segir í fréttatilkynningu frá félaginu.