Helgi Svanur Haraldsson hefur verið ráðinn til Advania til að leiða þjónustu fyrirtækisins á sviði á gervigreindar.  Helgi Svanur fór áður fyrir stafrænni umbreytingu, sjálfvirknivæðingu og gagnavísindum hjá KPMG á Íslandi. Hann ólst upp í Bretlandi þar sem hann lauk meistaragráðu í stærðfræði frá háskólanum í Warwick.

Hann hefur meðal annars starfað sem ráðgjafi fyrir Deloitte við gagnastjórnun og greiningu gagna. Hann kom einnig á legg viðburðaappinu Who‘s Up sem var aðgengilegt í IOS og Android og nýtti gervigreind til að tengja fólk saman á nýstárlegan hátt út frá tengslaneti og áhugamálum.

Samhliða því starfaði Helgi Svanur sjálfstætt við gagnavísindi og arkitektúr gagnakerfa í fjármálageira og smásölu í Singapore, Shanghai og London.

„Gervigreind er ekki lengur eitthvað sem aðeins er stundað á rannsóknarstofum heldur er tæknin orðin aðgengileg og getur reynst fyrirtækjum mjög arðbær,“ segir Kristinn Eiríksson framkvæmdastjóri viðskiptalausna Advania.

„Helgi Svanur kemur með mikla þekkingu og reynslu af gervigreind og leiðir sókn Advania á því sviði. Það er tímabært að íslensk fyrirtæki nýti sér þessa tækni til að skapa sér samkeppnisforskot.“

Helgi Svanur er sagður í fréttatilkynningu búa yfir einstakri þekkingu á upplýsingatækni sem lítið hafi verið notuð á Íslandi. Hann hafi meðal annars unnið með stór gagnasett og flóknar greiningar á þeim, gervigreind og sjálfvirknivæðingu ferla.