Rúmlega helmingur fullvinnandi launamanna var með heildarlaun undir 500 þúsund krónum á mánuði árið 2014 og um 45% launamanna voru með heildarlaun á bilinu 300-500 þúsund krónur. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Tæplega 30% launamanna voru með heildarlaun á bilinu 500-700 þúsund og tæp 20% voru með heildarlaun yfir 700 þúsund krónur á mánuði árið 2014. Meðaltal heildarlauna var 555 þúsund krónur á mánuði, 619 þúsund hjá körlum og 486 þúsund hjá konum.

Fleiri launamenn voru með laun undir meðaltali en yfir því, eða 63% launamanna. Þá voru 75% kvenna með heildarlaun undir meðaltali en rúmlega helmingur karla.

Á almennum vinnumarkaði voru meðallaun 580 þúsund krónur á mánuði árið 2014, heildarlaun ríkisstarfsmanna voru 603 þúsund krónur og heildarlaun starfsmanna sveitarfélaga voru 442 þúsund krónur. Þá voru heildarlaun kvenna að jafnaði lægri en karla og dreifing launa þeirra var minni en dreifing launa karla.

Árið 2014 voru heildarlaun hæst í fjármála- og vátryggingastarfsemi en þar voru heildarlaun 763 þúsund krónur að meðaltali. Heildarlaun voru lægst í fræðslustarfsemi en þar voru þau 445 þúsund krónur að meðaltali og var það eina atvinnugreinin þar sem meðaltal heildarlauna náði ekki 500 þúsund krónum árið 2014.