Launagreiðendur voru 210 fleiri síðustu 12 mánuði heldur en 12 mánuðina þar á undan, sem gerir um 1,3% fjölgun milli ára.
Á tímabilinu frá mars 2016 til febrúar 2017 voru launagreiðendurnir að jafnaði 16.947 og greiddu þeir að meðaltali 181.300 einstaklingum laun á tímabilinu.
Er það fjölgun launþega á sama tímabili um 8.300, eða 4,8%, að því er Hagstofan greinir frá. Um helmingur nýrra starfa eru í greinum tengdum ferðaþjónustu.
Fækkun starfa í sjávarútvegi
Launþegum fækkaði á milli tímabila í sjávarútvegi meðan þeim fjölgaði mikið í byggingariðnaði og ferðaþjónustu.
Voru 2.423 launagreiðendur og 10.700 launþegar í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og hafði þeim fjölgað um 1.500 launþega, eða 17%, á milli ára.
Minni fjölgun í ferðaþjónustu en byggingarstarfsemi
Í greinum sem teljast einkennandi við ferðaþjónustu voru í febrúarmánuði 1.558 launagreiðendur og um 23.400 launþegar, en þeim hafði fjölgað um 2.900 eða um 14% á einu ári.
Heildarfjölgun launþega á sama tíma var um 6.000 manns, eða sem nemur um 4%, svo tæplega helmingur nýrra starfa eru í þessum greinum eins og áður segir.
Hagstofan tekur fram að í þessum tölum séu ekki upplýsingar um einyrkja með rekstur á eigin kennitölum, sem sé algengt í byggingariðnaði og fleiri greinum. Jafnframt segir stofnunin tölurnar bráðabirgðatölur.