Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hafa hækkað í morgun. Þannig hefur þýska vísitalan DAX hækkað um 0,74% og franska vísitalan CAC hækkað um 0,84%. Breska vísitalan FTSE 100 hefur hækkað um 0,28% og Stoxx Europe 600 hefur hækkað um 0,49% það sem af er morgni.