Herdís Dröfn Fjeldsted hefur sagt sig úr stjórn VÍS frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu VÍS til Kauphallarinnar.
Herdís gengdi áður starfi stjórnarformanns félagsins frá því í nóvember 2015, hins vegar var Svanhildur Nanna Vigfúsardóttir, fjárfestir og hluthafi í VÍS kjörin nýr formaður í byrjun mánaðarins.
Eftirfarandi skipa nú stjórn félagsins;
Aðalmenn
- Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, formaður
- Helga Hlín Hákonardóttir, varaformaður
- Gestur Breiðfjörð Gestsson
- Valdimar Svavarsson
Varamenn
- Andri Gunnarsson
- Sandra Hlíf Ocares