Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur ráðið Hildi Sverrisdóttur sem aðstoðarmann sinn. Hún hefur störf undir lok þessa mánaðar segir á vef ráðuneytisins. Þórdís Kolbrún mun þar með hafa tvo aðstoðarmenn en fyrir er Ólafur Teitur Guðnason.

Hildur er fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Á síðasta kjörtímabili var hún þingmaður fyrir flokkinn og þar áður borgarfulltrúi.

Hildur er fædd árið 1978. Hún er með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og lögmannsréttindi. Hún hefur meðal annars starfað sem lögfræðingur hjá fjölmiðlafyrirtækinu 365 og sem framkvæmdastjóri V-dags gegn kynferðisbrotum. Hildur skrifaði um árabil bakþanka í Fréttablaðið og ritstýrði jafnframt bókinni Fantasíur.