Hildur Sverrisdóttir varð þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður við fráfall Ólafar Nordal. Í kjölfarið ákvað Hildur að biðjast lausnar sem borgarfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur.

„Lausnarbeiðnin verður formlega tekin fyrir á borgarstjórnarfundi þann 7. mars næstkomandi þar sem ég mun óska eftir því við borgarstjórn, með vísan til 2. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga, að mér verði veitt lausn frá öllum störfum mínum fyrir borgarstjórn. Þangað til mun ég eftir fremsta megni koma útistandandi málum í góðan farveg,“ segir í tilkynningu frá Hildi.

Að lokum segir Hildur: „Ég hef haft mikla ánægju af starfi mínu sem borgarfulltrúi en tel betra að öll mikilvægu verkefnin sem bíða beggja megin Vonarstrætis fái óskipta athygli. Ég mun halda áfram að vinna fyrir Reykvíkinga í störfum mínum á Alþingi eins og við á. Ég þakka gott samstarf við borgarfulltrúa og embættismenn borgarinnar undanfarin ár.“