Hjördís hefur reynslu af bæði markaðsmálum og markaðsrannsóknum, en undanfarin fimm ár hefur Hjördís starfað hjá Festi, fyrst sem markaðsfulltrúi Krónunnar, Nóatúns og Kjarval en nú síðast sem sérfræðingur í markaðsdeild Krónunnar.

Hjödís er með MS gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá HÍ og lærði Stafræna markaðssetningu og viðskipti á netinu hjá Opna háskólanum í Reykjavík. Hún hefur jafnframt bakgrunn í Viðskiptafræði frá HR.

„Við fögnum því að Hjördís Elsa taki nú við sem markaðsstjóri Krónunnar en hún þekkir ákaflega vel til hjá okkur,“ segir Gréta María Grétarsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar.

„Krónan hefur vaxið og dafnað á undanförnum árum og eru verslanir okkar nú 24 talsins. Hjördís þekkir sögu fyrirtækisins vel og við hlökkum til að takast skemmtilegar áskoranir í síbreytilegu rekstrarumhverfi með hana í fararbroddi.“