Hjördís Hákonardóttir, fyrrverandi hæstaréttardómari, verður formaður nefndar sem hefur það hlutverk að meta lögmæti kaupa Magma Energy á eignarhlutum í HS orku. Nefndin mun einnig meta starfsumhverfi orkugeirans hér á landi. Nefndin er skipuð af forsætisráðherra.

Auk Hjördísar sitja í nefndinni: Bjarnveig Eiríksdóttir, hdl., LL.M í Evrópurétti og alþjóðaviðskiptarétti Sveinn Margeirsson, dr. í iðnaðarverkfræði Ólafur Páll Jónsson, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands Aagot Óskarsdóttir, lögfræðingur.

Nefndinni til ráðgjafar verður Trausti Fannar Valsson, lektor í stjórnsýslurétti við Háskóla Íslands. Í tilkynningu forsætisráðuneytisins um skipan nefndarinnar segir að jafnmframt verði leitað til fleiri sérfræðinga við vinnslu afmarkaðra þátta.

Í tilkynningunni segir:

Nefndin mun vinna sjálfstæða úttekt á kaupum Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku í gegnum dótturfélag í Svíþjóð og meta lögmæti þeirra.

Nefndin skal gefa rökstutt álit á því hvort kaup Magma Energy á eignarhlut í orkufyrirtækinu HS Orku í gegnum dótturfélag í Svíþjóð séu samrýmanleg íslenskum lögum og reglum EES-samningsins. Nefndin skal meta hvort máli skipti í því samhengi hvort hið sænska dótturfélag hafi með höndum eiginlega starfsemi, hvort kaupandi sé kanadískur eða sænskur og hvaða hlutverki hið kanadíska móðurfélag gegnir í því að annast eða ábyrgjast greiðslur vegna viðskiptanna og í starfsemi og umsvifum félagsins hér á landi. Jafnframt skal nefndin kanna til hlítar hvort kaup Magma Energy á HS Orku standist meginreglur og markmið íslenskra laga um auðlindir og orkunýtingu og sérstaklega skal meta ákvæði EES-samningsins hvað ofangreinda þætti varðar.

Nefndin skal, á grundvelli framangreinds, láta í ljós álit sitt á því hvort forsendur kunni að vera fyrir stjórnvöld til að leita leiða til að grípa inn í umrædd viðskipti Magma Energy með hlut í HS Orku. Nefndin skal enn fremur greina og meta hvaða leiðir séu einkum færar í því sambandi, reifa hverjir eru helstu kostir og gallar hverrar leiðar og áætla líklegan kostnað við hverja leið. Loks skal nefndin meta hvaða aðrar leiðir eru færar til að tryggja að nýting þeirra auðlinda sem málið varðar sé í almannaþágu og í samræmi við stefnu í umhverfismálum.

Nefndin skal jafnframt afla gagna vegna rannsóknar á einkavæðingu innan orkugeirans og starfsumhverfi hans.

Í vinnu við þennan þátt skal tekið mið af yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands frá 27. júlí 2010. Markmið með slíkri rannsókn er að fyrir liggi heildstæð úttekt á einkavæðingu í orkugeiranum, hagsmunatengslum, samskiptum hagsmunaaðila og þróun lagaumhverfis þannig að bæta megi starfsumhverfi orkugeirans hér á landi til framtíðar litið, m.a. í ljósi reynslunnar. Sveinn Margeirsson, dr. í iðnaðarverkfræði, mun stýra þessum þætti í vinnu nefndarinnar.