Guðrún Blöndal láta af störfum í stjórn Regins hf. á föstudaginn. Á sama tíma kemur í hennar stað Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir varamaður í stjórn Regins .
Hjördís er með BS gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Í tilkynningu frá Reginn til Kauphallarinnar segir að Hjördís hefur mikla stjórnunarreynslu en hún var árin 2010 -2012 framkvæmdastjóri Endurskipulagningar eigna hjá Landsbankanum ásamt því að leiða sameiningu SP fjármögnunar og Avant í nýtt svið Landsbankans sem heitir Bíla- og tækjafjármögnun Landsbankans. Hjördís hefur einnig starfað í Fjármálaráðuneytinu sem ráðgjafi Fjármálaráðherra frá 2009-2010. Stjórn og stjórnendur Regins bjóða hana velkomna í hópinn.
Guðrún Blöndal hefur setið í stjórn Regins frá því í desember 2012. Guðrún er að hverfa til annarra starfa og þakkar stjórn og stjórnendur félagins henni fyrir vel unnin störf fyrir Regin og óskar henni góðs gengis á nýjum starfsvettvangi.